Var yfirbugaður af lögreglu eftir að hafa stolið bíl og rafmagnshlaupahjóli

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Um miðjan dag á þriðjudaginn í liðinni viku var tilkynnt um glæfraakstur ökumanns á Vesturlandsvegi og Hvítárvallavegi. Þegar lögreglan fór að kanna málið og rekja slóðina þá var hann kominn upp í Svignaskarð. Síðan tók hann rafmagnhlaupahjól ófrjálsri hendi og lagði á flótta á því sem leið lá til Borgarness. Á leiðinni þangað reyndi hann að sparka í bíla sem hann mætti á þjóðveginum og svo var hann mættur skömmu síðar í bílinn aftur þar sem hann var við Galtarholt og þar var hann handtekinn. Þar kom í ljós að hann var á stolnum bíl, talsvert ölvaður og hafði auk þess keyrt utan í bíl í Borgarnesi. Ökumaðurinn var færður í fangageymslur og á von á sekt fyrir athæfið.",
  "innerBlocks": []
}
Var yfirbugaður af lögreglu eftir að hafa stolið bíl og rafmagnshlaupahjóli - Skessuhorn