
Áskell og Laufey Dóra.
Kjólar og ljósmyndir í gamla Iðnskólanum á Akranesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sýning á ljósmyndum og kjólum verður í gamla Iðnskólanum á Akranesi dagana 17. og 18. júní. Kjólarnir eru með myndum sem flestar eru teknar á Vesturlandi og þeir eru framleiddir undir heitinu LAUFEY. Efnið í kjólunum er unnið úr endurnýttum plastflöskum.\r\n\r\nÁskell Þórisson ljósmyndari tók myndirnar sem eru á kjólunum og sömuleiðis myndirnar sem munu hanga á veggjum gamla Iðnskólans. Það eru þau feðgin Laufey Dóra og Áskell sem ýttu kjólaframleiðslunni úr vör en Sjöfn Magnúsdóttir klæðskeri á Akranesi sér um saumaskapinn og kemur nú að hönnuninni með Laufeyju. Hver kjóll er sérsaumaður eftir málum kaupenda.\r\n\r\nSýningin í gamla Iðnskólanum, Skólabraut 9, verður opin frá kl. 11 til 17:30 báða dagana. Áhugasamir um kjóla geta hitt þær Laufeyju og Sjöfn á staðnum þann 17. júní frá kl. 14 til 16 en Áskell verður þar báða dagana. Myndirnar eru til sölu en kjólana þarf að sérpanta.",
"innerBlocks": []
}