Jón Eiríkur kjörinn oddviti Skorradalshrepps

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Laugardaginn 11. júní síðastliðinn hélt nýkjörin hreppsnefnd Skorradalshrepps sinn fyrsta fund eftir sveitarstjórnarkosningar. Pétur Davíðsson starfsaldursoddviti boðaði til fundarins sem fram fór á Hvanneyri. Fundinn sátu auk Péturs þau Jón Eiríkur Einarsson, Guðný Elíasdóttir, Óli Rúnar Ástþórsson og Kristín Jónsdóttir.\r\n\r\nKosning oddvita til eins árs fór fram á fundinum og fór kosningin þannig að Jón fékk þrjú atkvæði og þeir Óli Rúnar og Pétur eitt atkvæði hvor. Jón Eiríkur var því réttkjörinn oddviti til eins árs og þakkaði Jón fyrir kjörið og óskaði eftir góðu samstarfi við nefndarmenn. Guðný Elíasdóttir var síðan kosin varaoddviti til eins árs en hún fékk fjögur atkvæði gegn einu atkvæði Péturs. Síðan var kosið í undirnefndir og aðrar nefndir en þær má sjá á heimasíðunni skorradalur.is.",
  "innerBlocks": []
}
Jón Eiríkur kjörinn oddviti Skorradalshrepps - Skessuhorn