Fréttir

true

Veiðiráðgjöf lækkuð um 6% í þorski en hækkuð um 23% í ýsu

Hafrannsóknastofnun ráðleggur 6% lækkun aflamarks í þorski fyrir næsta fiskveiðiár. Byggir sú ráðgjöf á aflareglu stjórnvalda. Því lækkar ráðlagður heildarafli úr 222 .373 tonnum á yfirstandandi fiskveiðiári í 208. 846 tonn á því næsta. Lækkunina nú má rekja til lækkunar á mati á viðmiðunarstofni í fyrra miðað við undanfarin ár og innbyggðrar sveiflujöfnunar í aflareglu. „Gert er…Lesa meira

true

Lýsa samskiptum grindhvala og háhyrninga við landið

Grindhvalir virðast hafa orðið tíðari gestir við Íslandsstrendur á undanförnum árum og stökkva háhyrningum á flótta með hátterni sínu í hafinu. Þetta sýnir ný rannsókn vísindamanna við Háskóla Íslands sem unnin er í nánu samstarfi við hvalaskoðunarfyrirtæki allt í kringum landið. Um er að ræða fyrstu rannsókn sinnar tegundar þar sem samskiptum grindhvala og háhyrninga…Lesa meira

true

Norðurálsmótið í knattspyrnu verður um helgina

Norðurálsmótið á Akranesi verður haldið dagana 16.-19. júní. Mótið er fyrir 7. flokk drengja og hefst það 17. júní og lýkur sunnudaginn 19. júní. Einnig er mót fyrir 8. flokk drengja og stúlkna sem fram fer á morgun, fimmtudaginn 16. júní, og er þar spilaður fimm manna bolti. Þátttaka á Norðurálsmótinu í ár er mikil…Lesa meira

true

Opið hús hjá Rarik í Borgarnesi og Stykkishólmi

Síðdegis í dag, miðvikudaginn 15. júní, verða opin hús á völdum starfsstöðvum RARIK víðs vegar um landið í tilefni af 75 ára afmæli fyrirtækisins. Starfsmenn RARIK munu taka á móti gestum og kynna aðstöðu og starfsemi fyrirtækisins á hverjum stað. Boðið verður upp á kaffi, afmælistertu og aðrar veitingar auk þess sem afmælisfáni verður dreginn…Lesa meira

true

Lokað í Hvalfjarðargöngum í kvöld og nótt vegna alþrifa

Fram kemur á heimasíðu Vegagerðarinnar að Hvalfjarðargöngin verða lokuð vegna alþrifa í kvöld og nótt. Lokað verður klukkan 22 og til 06.30. Umferð verður beint um Hvalfjörð um veg 47. Athygli vekur að lokun hefst klukkan 22 en ekki um miðnætti eins og meðan Spölur átti og rak göngin. Ökumenn verða því að vera fyrr…Lesa meira

true

Gummi Finns kveður Þinghamar eftir 40 ára starf

Þinghamar er félagsheimili að Varmalandi í Borgarfirði. Húsið er stórt og var byggt sem stærsta og veglegasta félagsheimili Vesturlands, samkvæmt grein sem birtist í Morgunblaðinu þegar starfsemi í húsinu hófst árið 1983. Félagsheimilið var byggt af hreppum Stafholtstungna, Norðurárdals, Þverárhlíðar og Hvítársíðu á sínum tíma en heyrir í dag undir sveitarfélagið Borgarbyggð. Húsið er veglegt…Lesa meira

true

Fimmtán nýsköpunarverkefni fengu úthlutað

Síðastliðinn föstudag fór á Hvanneyri fram úthlutunarathöfn vegna styrkja úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands og var um síðari úthlutun ársins að ræða í flokki atvinnu- og nýsköpunarstyrkja. Þetta er áttunda árið sem sjóðurinn úthlutar styrkjum til annars vegar menningarverkefna og hins vegar atvinnu- og nýsköpunarverkefna í samræmi við Sóknaráætlun Vesturlands. Sá háttur hefur verið hafður á að…Lesa meira

true

Afhjúpa minnismerki um eina skipaskurð landsins

Sigurður Þórólfsson frá Innri-Fagradal hefur verið mikill áhugamaður um að viðhalda munnmælum um eina skipaskurð landsins og merkja hann. Flæðilækurinn er 430 metra langur og um 18 metra jafnbreiður en mjókkar nokkuð síðustu 30 metrana. Hann liggur til suðurs í átt að Staðarhóli frá Hvolsá í Saurbæ, skammt vestan við Kirkjuhvol, núverandi Staðarhólskirkju. Nú á…Lesa meira

true

Sigríður Elín tók sæti á þingi

Sigríður Elín Sigurðardóttir, 2. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, tók í vikunni sæti á Alþingi, í forföllum Þórdísar Kolbrúnar R Gylfadóttur utanríkisráðherra. Sigríður Elín flutti í dag jómfrúarræðu sína á þingi. Hún er fjórði yngsti varaþingmaður sem tekur sæti á Alþingi, en hún er 21 árs, fædd í desember 2000.Lesa meira

true

Tveir læknar hafa sótt um vinnu í Borgarnesi

Fyrir nokkru auglýsti Heilbrigðisstofnun Vesturlands eftir læknum til starfa við heilsugæslustöðina í Borgarnesi og rann umsóknarfrestur út sl. mánudagskvöld. Fram að þessu hafa ekki borist umsóknir þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar, en þau gleðitíðindi urðu nú að tvær umsóknir bárust. Að sögn Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur forstjóra HVE verður kapp lagt á að ganga frá ráðningu læknanna…Lesa meira