{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sigurður Þórólfsson frá Innri-Fagradal hefur verið mikill áhugamaður um að viðhalda munnmælum um eina skipaskurð landsins og merkja hann. Flæðilækurinn er 430 metra langur og um 18 metra jafnbreiður en mjókkar nokkuð síðustu 30 metrana. Hann liggur til suðurs í átt að Staðarhóli frá Hvolsá í Saurbæ, skammt vestan við Kirkjuhvol, núverandi Staðarhólskirkju. Nú á að afhjúpa upplýsingaskilti um Flæðilækinn föstudaginn 17. júní nk. klukkan 16. Verður gestum boðið upp að þiggja kaffiveitingar í félagsheimilinu Tjarnarlundi.\r\n\r\nSkiltið verður staðsett við svokallaðan Skipapoll efst við Flæðilækinn. Segja má að ritun Sigurðar Þórólfssonar á grein, sem birtist í fyrsta skipti hér í Skessuhorni í dag, hafi verið kveikjan að gerð þessa upplýsingaskiltis. Sigurður og Kristjón Sigurðsson frá Tjaldanesi hafa unnið að því síðasta árið að gera að veruleika þetta upplýsingaskilti um eina skipaskurð landsins. Kristjón bar hitann og þungann af framkvæmdinni sjálfri.\r\n\r\nÞað var Birgir Jóakimsson hönnuður, sem til skamms tíma var starfsmaður Íslandsstofu, sem hannaði uppsetningu texta Sigurðar Þórólfssonar á íslensku og ensku ásamt myndum frá Flæðilæknum. Logoflex ehf. annaðist prentun skiltisins og Rafal ehf. smíði rammans og uppsetningu. Vegagerðin gerði bílastæði þar sem skiltinu verður komið fyrir við efri/syðri enda skurðarins við veg númer 590 skammt vestan afleggjara nr. 594 inn í Staðarhólsdal. Styrktaraðilar verkefnisins eru; Sóknaráætlun Vesturlands, Dalabyggð, Rafal og Vegagerðin.\r\n\r\n<a href=\"https://skessuhorn.is/?post_type=adsendar-greinar&p=54181&preview_id=54181&preview_nonce=23788052a0&_thumbnail_id=54182&preview=true\"><em>Sjá einnig grein Sigurðar Þórólfssonar hér á síðunni.</em></a>",
"innerBlocks": []
}
Afhjúpa minnismerki um eina skipaskurð landsins - Skessuhorn