Á þorskveiðum á Flákahorninu. Pétur Pétursson skipstjóri á Bárði SH. Ljósm. af

Veiðiráðgjöf lækkuð um 6% í þorski en hækkuð um 23% í ýsu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hafrannsóknastofnun ráðleggur 6% lækkun aflamarks í þorski fyrir næsta fiskveiðiár. Byggir sú ráðgjöf á aflareglu stjórnvalda. Því lækkar ráðlagður heildarafli úr 222 .373 tonnum á yfirstandandi fiskveiðiári í 208. 846 tonn á því næsta. Lækkunina nú má rekja til lækkunar á mati á viðmiðunarstofni í fyrra miðað við undanfarin ár og innbyggðrar sveiflujöfnunar í aflareglu. „Gert er ráð fyrir að viðmiðunarstofn þorsks fari hægt vaxandi næstu tvö til þrjú ár þegar árgangarnir frá 2019 og 2020 koma inn í viðmiðunarstofninn þar sem þeir eru nú metnir yfir meðallagi,“ segir í tilkynningu frá Hafró.\r\n\r\nSamkvæmt aflareglu verður aflamark ýsu 62. 219 tonn sem er 23% hækkun frá yfirstandandi fiskveiðiári. Áætlað er að viðmiðunarstofninn muni stækka næstu tvö árin vegna góðrar nýliðunar frá 2019 og 2020. Ráðgjöf fyrir ufsa samkvæmt aflareglu lækkar um 8% frá yfirstandandi fiskveiðiári og er 71.300 tonn. Samkvæmt aflareglu verður heildaraflamark gullkarfa 25.545 tonn, 20% lægra en á yfirstandandi fiskveiðiári. Ráðgjöf fyrir grálúðu stendur í stað frá fyrra ári og er 26 .710 tonn.\r\n\r\n<strong>SFS styður ráðgjöfina</strong>\r\n\r\nÍ tilkynningu sem Fyrirtæki í sjávarútvegi (SFS) sendu frá sér í morgun vegna þessarar ráðgjafar Hafró segir að öflugar og vandaðar hafrannsóknir séu grunnforsenda þess að unnt sé að skapa verðmæti úr fiskveiðiauðlind. „SFS hafa um langa hríð lýst áhyggjum af stöðu hafrannsókna hér á landi. Breytt umhverfisskilyrði í hafi og auknar kröfur á mörkuðum hafa síst dregið úr þessum áhyggjum. Sá mikli niðurskurður sem orðið hefur á vöktun nytjastofna á undanförnum árum er jafnframt umhugsunarefni. Slíkur sparnaður mun auka óvissu um afrakstursgetu stofna og leiða þar með til varkárari nýtingar en ella væri hægt að viðhafa. Sú niðurstaða, sem kynnt var í dag, er staðfesting þess að áhyggjur SFS eru réttmætar og brýnt er að bæta úr.\r\n\r\nFyrirtæki í sjávarútvegi munu þurfa að bregðast við samdrætti í veiðum og ákvarðanir sem taka þarf verða ekki léttvægar. Það er hins vegar ljóst að best hefur reynst að byggja ákvarðanir um nýtingu á niðurstöðum vísinda og sagan segir jafnframt að ekki sé skynsamlegt að fresta því að takast á við vandann. Að því sögðu þá eru það langtímahagsmunir atvinnugreinarinnar að stundaðar séu sjálfbærar fiskveiðar hér við land og því ekki annað ráðlegt en að fylgja ráðgjöf vísindanna,“ segir í tilkynningu frá SFS.",
  "innerBlocks": []
}
Veiðiráðgjöf lækkuð um 6% í þorski en hækkuð um 23% í ýsu - Skessuhorn