Norðurálsmótið í knattspyrnu verður um helgina

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Norðurálsmótið á Akranesi verður haldið dagana 16.-19. júní. Mótið er fyrir 7. flokk drengja og hefst það 17. júní og lýkur sunnudaginn 19. júní. Einnig er mót fyrir 8. flokk drengja og stúlkna sem fram fer á morgun, fimmtudaginn 16. júní, og er þar spilaður fimm manna bolti. Þátttaka á Norðurálsmótinu í ár er mikil en skráðir þátttakendur eru alls um 1.650. Hlini Baldursson er skrifstofu- og verkefnastjóri Knattspyrnufélags ÍA og segir hann í samtali við Skessuhorn að undirbúningur vegna mótsins hafi gengið vel og mikil og góð breyting frá mótunum í fyrra og árinu áður þegar fjöldatakmarkanir voru í gangi.\r\n\r\nFyrir tveimur árum var ÍA með í fyrsta skipti aukadag fyrir 8. flokk drengja og stúlkna og segir Hlini að það sé að mælast vel fyrir hjá félögunum og að það sé töluverð aukning í ár á þessu móti frá því í fyrra. Varðandi mönnun og vaktir á mótinu segir Hlini að það séu gríðarlega mörg störf sem koma að einu svona móti og það hafi bara gengið nokkuð vel að manna þetta: „En við búum einnig svo vel hérna á Akranesi að aðildarfélög innan Íþróttabandalagsins koma og hjálpa okkur að manna þær vaktir sem vantar upp á.“\r\n\r\nHlini segir að lokum að mótið í ár sé svipað og í fyrra. Iðkendur verða í kringum 1.150 í 7. flokks mótinu og yfir 500 í 8. flokks mótinu og við þetta bætast um 200 þjálfarar og liðsstjórar. Þá er töluverð aukning í skráningu á tjaldsvæðunum sem Knattspyrnufélag ÍA sér um. Það er því ljóst að það verður mikið fjör á Akranesi um næstu helgi á Norðurálsmótinu.",
  "innerBlocks": []
}
Norðurálsmótið í knattspyrnu verður um helgina - Skessuhorn