{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðdegis í dag, miðvikudaginn 15. júní, verða opin hús á völdum starfsstöðvum RARIK víðs vegar um landið í tilefni af 75 ára afmæli fyrirtækisins. Starfsmenn RARIK munu taka á móti gestum og kynna aðstöðu og starfsemi fyrirtækisins á hverjum stað. Boðið verður upp á kaffi, afmælistertu og aðrar veitingar auk þess sem afmælisfáni verður dreginn að húni. „Viðskiptavinir, eldri starfsmenn og aðrir velunnarar RARIK eru sérstaklega velkomnir og hlökkum við til að sjá sem flesta. Hér á Vesturlandi verður opið á starfsstöðvum fyrirtækisins í Borgarnesi og Stykkishólmi,“ segir í tilkynningu.",
"innerBlocks": []
}
Opið hús hjá Rarik í Borgarnesi og Stykkishólmi - Skessuhorn