Heilsugæslustöðin í Borgarnesi. Ljósm. gj.

Tveir læknar hafa sótt um vinnu í Borgarnesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrir nokkru auglýsti Heilbrigðisstofnun Vesturlands eftir læknum til starfa við heilsugæslustöðina í Borgarnesi og rann umsóknarfrestur út sl. mánudagskvöld. Fram að þessu hafa ekki borist umsóknir þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar, en þau gleðitíðindi urðu nú að tvær umsóknir bárust. Að sögn Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur forstjóra HVE verður kapp lagt á að ganga frá ráðningu læknanna á næstu dögum og mun annar þeirra geta hafið störf 1. september en hinn nokkru síðar, líklega um áramót. Vafalaust verða íbúar á starfssvæði Heilsugæslunnar í Borgarnesi ánægðir með þessi jákvæðu tíðindi.",
  "innerBlocks": []
}
Tveir læknar hafa sótt um vinnu í Borgarnesi - Skessuhorn