Guðmundur Finnsson fyrir framan Þinghamar. Ljósm. sþ.

Gummi Finns kveður Þinghamar eftir 40 ára starf

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þinghamar er félagsheimili að Varmalandi í Borgarfirði. Húsið er stórt og var byggt sem stærsta og veglegasta félagsheimili Vesturlands, samkvæmt grein sem birtist í Morgunblaðinu þegar starfsemi í húsinu hófst árið 1983. Félagsheimilið var byggt af hreppum Stafholtstungna, Norðurárdals, Þverárhlíðar og Hvítársíðu á sínum tíma en heyrir í dag undir sveitarfélagið Borgarbyggð. Húsið er veglegt og má þar finna samkvæmissal og eldhús, íþróttasal og sundlaug. Það hentar vel undir ýmsar samkomur og hefur Grunnskóli Borgarfjarðar á Varmalandi nýtt aðstöðuna til sunds og íþrótta frá upphafi. Umsjónarmaður hússins er Guðmundur Finnsson, oftast kallaður Gummi Finns, en húsið hefur verið í umsjón hans allt frá byggingu. Gummi mun nú í sumar skila lyklunum eftir fjögurra áratuga starf. Er nú auglýst eftir arftaka hans og þar er í stór fótspor að feta. Guðmundur býr sjálfur á Varmalandi og er þess vegna alltaf tiltækur ef eitthvað bjátar á. Blaðamaður bankaði upp á hjá Guðmundi í liðinni viku og reyndi að veiða upp úr honum sögu hússins og skemmtilegar frásagnir.\r\n\r\n<em>Sjá ítarlegt viðtal við húsvörðinn Gumma Finns í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Gummi Finns kveður Þinghamar eftir 40 ára starf - Skessuhorn