
Í suðaustan hvassviðri sem fylgdi tveimur lægðum um helgina varð nokkuð tjón í Grundarfirði enda getur vindáttin verið slæm þar. Meðal annars losnuðu þakplötur á íþróttahúsi bæjarins, hurð fauk upp á húsi fjölbrautaskólans, bátur á vagni fauk á hliðina og flutningavagn frá Ragnari og Ásgeiri lagðist sömuleiðis á hliðina. Björgunarsveitin Klakkur var kölluð út til…Lesa meira








