
Nýtt öryggis- og neyðarfjarskiptakerfi hefur vinnuheitið FÖNix. Það mun byggja á nýjustu fjarskiptatækni og taka mið af sambærilegum kerfum í nágrannalöndunum. Meðal annars er stefnt að fjarskiptum um gervihnetti.
Undirbúningur hafinn að nýju neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi
Vinna við undirbúning næstu kynslóðar sameiginlegs fjarskiptakerfis fyrir öryggis- og neyðarþjónustu á Íslandi er hafinn. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra greindi frá þessu í opnunarávarpi sínu á ráðstefnunni Björgun 2026 í Hörpu fyrir helgi. Fyrirtækið Korda leiðir vinnuna og er tæknilegur undirbúningur hafinn.