
Leikskólinn Hnoðraból er fjörutíu ára – afmælishátíð á morgun
Á morgun, þriðjudaginn 20. október, verður með pompi og prakt haldið upp á 40 ára afmæli Leikskólans Hnoðrabóls á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði. Skólinn hefur frá árinu 2020 verið til húsa í nýju og glæsilegu húsnæði sem er sambyggt grunnskólanum á staðnum. Mjög gott útisvæði er við skólann sem hannað er af Sigurbjörgu Ósk Áskelsdóttur hjá Landlínum. Við hönnun skólans og útisvæðis fékk starfsfólk að leggja fram sínar hugmyndir. Á Hnoðrabóli eru að jafnaði 25-30 börn en fyrirséð að þeim muni fjölga eftir áramótin. Mest hafa 34 börn úr uppsveitum Borgarfjarðar verið í skólanum. Níu starfsmenn eru við skólann, þar af nokkrir í hlutastarfi. Blaðamaður Skessuhorns leit við á Hnoðrabóli fyrir helgi, en þá var starfsfólk og nemendur í óða önn að undirbúa afmælisdaginn með ýmsum hætti. Hlýlega var tekið á móti gesti og börnin voru afar áhugasöm að sýna það nýjasta í föndri og verkefnum dagsins. Fyrir hádegi á sjálfan afmælisdaginn verður partý í skólanum en frá klukkan 14:00 til 15:45 verður tekið á móti gestum. Þá verður grænfáninn dreginn að húni í fimmta sinn en skólinn fékk hann afhentan í síðustu viku.