
Nokkur tjón í Grundarfirði vegna veðurhvellsins um helgina
Í suðaustan hvassviðri sem fylgdi tveimur lægðum um helgina varð nokkuð tjón í Grundarfirði enda getur vindáttin verið slæm þar. Meðal annars losnuðu þakplötur á íþróttahúsi bæjarins, hurð fauk upp á húsi fjölbrautaskólans, bátur á vagni fauk á hliðina og flutningavagn frá Ragnari og Ásgeiri lagðist sömuleiðis á hliðina. Björgunarsveitin Klakkur var kölluð út til aðstoðar. Um tíma var fólk beðið um að vera ekki á ferðinni í bænum, einkum þar sem þakplötur voru að fjúka. Vindhraði fór yfir 40 metra á sekúndu í hviðum og hafði því verið spáð.