
Öruggur sigur ÍA á Snæfelli í Vesturlandsslag
Skagamenn höfðu mikla yfirburði þegar þeir tóku á móti Snæfelli í 1. deild karla í körfuknattleik í AvAir höllinni á föstudagskvöld. ÍA sigraði 113:81 eftir að hafa lagt grunninn að sigrinum strax í fyrsta leikhluta. Alls fylgdust 237 áhorfendur með viðureigninni. Heimamenn byrjuðu af miklum krafti og unnu fyrsta leikhlutann 33:15. Jafnræði var með liðunum í næstu tveimur leikhlutum sem enduðu báðir með jafntefli, en Skagamenn bættu enn í undir lokin, unnu síðasta leikhlutann 30:16 og fögnuðu öruggum 32 stiga sigri.