Kenndi bridds á Smiðjuhelgi í skólanum

Á föstudag og laugardag tóku nemendur á unglingastigi Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum þátt í Smiðjuhelgi. Hópurinn velur sér viðfangsefni en smiðjurnar snerust að þessu sinni um körfubolta, ljósmyndun, útivist, landbúnað og bridds. Nemendur frá Dölum, Ströndum og Reykhólum komu í heimsókn og tóku þátt í smiðjuhelginni með unglingastigi GBF. Byrjað er síðdegis á föstudegi, gist í skólanum og haldið síðan áfram í gærmorgun, en farið heim eftir hádegi í gær þar sem veðurspá var slæm fyrir Strandir.