Leikskólinn Krílakot í Ólafsvík. Ljósm. Snæfellsbær.

Leikskólagjöld munu lækka um helming í Snæfellsbæ

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar hefur samþykkt að lækka dvalargjöld í leikskólum sveitarfélagsins um 50% frá og með næstu áramótum. Með ákvörðuninni vill sveitarfélagið létta fjárhagslega byrði barnafjölskyldna og stuðla að fjölskylduvænna samfélagi. Ákvörðunin var tekin á fundi bæjarstjórnar 13. október að tillögu forseta bæjarstjórnar. Hún er í samræmi við áherslur D-listans um fjölskylduvænt samfélag sem kynntar voru á opnum íbúafundi í Félagsheimilinu Klifi í maí síðastliðnum.