
Gjaldskrár hækkar að hámarki um 2,5%
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt samhljóða að miða við að gjaldskrár sem lagðar eru á heimili í sveitarfélaginu hækki að hámarki um 2,5% á næsta ári. Markmiðið er að halda aftur af kostnaðarhækkunum heimilanna og leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólgu. Samþykktin er í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem sveitarfélög eru hvött til að takmarka hækkanir almennra gjaldskráa við 2,5% árið 2027 og styðja þannig við lækkun verðbólgu og vaxta.