
Rjúpur til fjalla. Ljósm. Páll Stefánsson
Rjúpnaveiðar mega hefjast á föstudaginn
Hér á Vesturlandi verður heimilt að veiða rjúpu frá og með föstudeginum 23. október. Samkvæmt ákvörðun Umhverfisráðuneytisins verður tímabil veiðanna frá föstudögum til og með þriðjudögum á tímabili sem ákveðið er sérstaklega innan hvers veiðisvæðis. Hér á Vesturlandi verður leyft að veiða á tímabilinu 23. október til 1. desember. Ítrekað er að sölubann er á rjúpum og á það jafnt við um sölu til endursöluaðila og annarra.