
Vegstubbur er olnbogabarn í kerfinu
Tveir afleggjarar liggja upp að höfuðstaðnum Reykholti í Borgarfirði. Sá sem er austan við gamla skólahúsið er ríflega hálfur kílómetri að lengd og endar við garðyrkjubýlið Varmaland. Þúsundir ferðamanna og gesta á hótelið aka þessa leið en þar er meðal annars styst að Snorralaug og hvernum Skriflu. Viðhaldi vegarins er hins vegar verulega ábótavant. Íbúar í Reykholti segja að hver bendi á annan þegar kallað sé eftir aðgerðum; Vegagerðin og sveitarfélagið Borgarbyggð. Í veginum séu djúpar holur sem geta verið varasamar og sprengt dekk. Gunnhildur Sveinsdóttir garðyrkjubóndi á Varmalandi segir það óþolandi að veginum sé ekki haldið við. Í vikunni sem leið arkaði hún af stað með möl í hjólbörum til að fylla í stærstu og hættulegustu holuna. Þurft hafi tíu hjólbörufarma af möl til að barmafylla hana. „Við höfum argast í að fá viðgerð á þessum vegstubbi í mánuði eða ár en það bendir hver á annan, starfsmenn Vegagerðarinnar og Borgarbyggðar. Því var ákveðið að fá frétt um málið í Skessuhorni og freista þess að fá viðbrögð,“ sagði Tryggvi Konráðsson staðarráðsmaður í Reykholti í samtali við blaðamann.
