Varað er við mikilli ölduhæð við ströndina sunnan- og vestanlands.

Suðvestan hvassviðri í dag

Í dag verður hvassviðri og úrkoma um nær allt land. Gular viðvaranir taka gildi um vestanvert landið eftir hádegi og gilda til klukkan 21 í kvöld. Með hvassri suðvestanátt í dag má reikna með staðbundnum vindhviðum svo sem á norðanverðu Snæfellsnesi eftir kl. 14 og fram á kvöldið. Vindhraði verður víða 18-23 metrar á sekúndu. Viðvaranir eru einnig vegna skriðuhættu á norðvesturhluta landsins og vegna mikillar ölduhæðar nærri ströndinni sunnan- og vestantil. Hiti verður á bilinu 6-12 stig.