Fréttir

true

Kenndi bridds á Smiðjuhelgi í skólanum

Á föstudag og laugardag tóku nemendur á unglingastigi Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum þátt í Smiðjuhelgi. Hópurinn velur sér viðfangsefni en smiðjurnar snerust að þessu sinni um körfubolta, ljósmyndun, útivist, landbúnað og bridds. Nemendur frá Dölum, Ströndum og Reykhólum komu í heimsókn og tóku þátt í smiðjuhelginni með unglingastigi GBF. Byrjað er síðdegis á föstudegi, gist…Lesa meira

true

Undirbúningur hafinn að nýju neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi

Vinna við undirbúning næstu kynslóðar sameiginlegs fjarskiptakerfis fyrir öryggis- og neyðarþjónustu á Íslandi er hafinn. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra greindi frá þessu í opnunarávarpi sínu á ráðstefnunni Björgun 2026 í Hörpu fyrir helgi.  Fyrirtækið Korda leiðir vinnuna og er tæknilegur undirbúningur hafinn. Nýtt öryggis- og neyðarfjarskiptakerfi sem hefur vinnuheitið FÖNix mun byggja á nýjustu fjarskiptatækni…Lesa meira

true

Suðvestan hvassviðri í dag

Í dag verður hvassviðri og úrkoma um nær allt land. Gular viðvaranir taka gildi um vestanvert landið eftir hádegi og gilda til klukkan 21 í kvöld. Með hvassri suðvestanátt í dag má reikna með staðbundnum vindhviðum svo sem á norðanverðu Snæfellsnesi eftir kl. 14 og fram á kvöldið. Vindhraði verður víða 18-23 metrar á sekúndu.…Lesa meira

true

Öruggur sigur ÍA á Snæfelli í Vesturlandsslag

Skagamenn höfðu mikla yfirburði þegar þeir tóku á móti Snæfelli í 1. deild karla í körfuknattleik í AvAir höllinni á föstudagskvöld. ÍA sigraði 113:81 eftir að hafa lagt grunninn að sigrinum strax í fyrsta leikhluta. Alls fylgdust 237 áhorfendur með viðureigninni. Heimamenn byrjuðu af miklum krafti og unnu fyrsta leikhlutann 33:15. Jafnræði var með liðunum…Lesa meira

true

Leikskólagjöld munu lækka um helming í Snæfellsbæ

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar hefur samþykkt að lækka dvalargjöld í leikskólum sveitarfélagsins um 50% frá og með næstu áramótum. Með ákvörðuninni vill sveitarfélagið létta fjárhagslega byrði barnafjölskyldna og stuðla að fjölskylduvænna samfélagi. Ákvörðunin var tekin á fundi bæjarstjórnar 13. október að tillögu forseta bæjarstjórnar. Hún er í samræmi við áherslur D-listans um fjölskylduvænt samfélag sem kynntar voru…Lesa meira

true

Ríkið og Sjóvá standa áfram með Landsbjörgu

Við setningu Björgunar 26 í síðustu viku, alþjóðlegrar ráðstefnu um björgunarmál, var skrifað undir viljayfirlýsingu íslenska ríkisins og Slysavarnafélagsins Landsbjargar um áframhaldandi stuðning við endurnýjun björgunarskipaflotans við strendur Íslands. Ríkið hefur stutt myndarlega við verkefnið fram til þessa, með 50% framlagi í hvert skip. Fyrir lá viljayfirlýsing um aðkomu ríkisins að tíu skipum og nú…Lesa meira

true

Hefja byggingu þriggja einbýlishúsa

Í gær var tekin fyrsta skóflustungan að byggingu þriggja einbýlishúsa við Skógarlund 30, 32 og 34 á Akranesi. Það var Fannar Helgason framkvæmdastjóri Þróttar sem sjálfur steig upp í gröfuna og hóf jarðvegsskipti undir fyrsta einbýlishúsið við Skógarlund 30. Byggingaraðili er Trésmiðjan Akur ehf. Ágætt útsýni er frá byggingarstað; stutt í golfvöllinn og fagurt útsýni…Lesa meira

true

Heiðruð fyrir farsæl störf að sveitarstjórnarmálum

Á haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem haldið var á Varmalandi í Borgarfirði í síðustu viku, var fjórum einstaklingum veitt viðurkenning fyrir framlag sitt til samfélags og byggðar. Þetta voru þau Einar Brandsson á Akranesi, Pétur Davíðsson í Skorradal, Björg Ágústsdóttir í Grundarfirði og Hrefna Bryndís Jónsdóttir í Borgarfirði. „Heiðursviðurkenningarnar eru þakklætisvottur fyrir áralanga þjónustu,…Lesa meira

true

Þakplötur að losna – hættulegt að vera á ferðinni

Þakplötur hafa losnað af íþróttahúsinu í Grundarfirði vegna sunnan hvassviðris sem nú gengur yfir. „Unnið er að því að bregðast við aðstæðum og tryggja öryggi á svæðinu. Fólk er eindregið hvatt til að halda sig fjarri íþróttahúsinu og næsta nágrenni þess á meðan hætta er á foktjóni,“ segir í tilkynningu frá Grundarfjarðarbæ. Björgunarsveitin Klakkur í…Lesa meira

true

Sýning um sögu sjóslysa sett upp á Breið

Sýningin Sjóslys við Ísland hefur verið sett upp við Akranesvita. Um er að ræða útisýningu á vegum Faxaflóahafna sem hefur staðið á Miðbakkanum í Reykjavík frá því fyrr á þessu ári. Sýningin varpar ljósi á þróun sjóslysa við Íslandsstrendur síðustu 150 árin og er tileinkuð minningu þeirra þúsunda sjófarenda sem látist hafa og/eða lent í…Lesa meira