Þau hlutu heiðursviðurkenningu SSV. F.v. Björg, Hrefna Bryndís, Pétur og Einar. Ljósm. SSV.

Heiðruð fyrir farsæl störf að sveitarstjórnarmálum

Á haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem haldið var á Varmalandi í Borgarfirði í síðustu viku, var fjórum einstaklingum veitt viðurkenning fyrir framlag sitt til samfélags og byggðar. Þetta voru þau Einar Brandsson á Akranesi, Pétur Davíðsson í Skorradal, Björg Ágústsdóttir í Grundarfirði og Hrefna Bryndís Jónsdóttir í Borgarfirði. „Heiðursviðurkenningarnar eru þakklætisvottur fyrir áralanga þjónustu, forystu og óeigingjarnt starf í þágu sveitarfélaga og íbúa á Vesturlandi. Framlag þeirra hefur haft varanleg áhrif á samfélögin sem þau hafa þjónað og styrkt samstarf sveitarfélaga um landshlutann,“ segir í tilkynningu frá SSV.