Hluti sýningarinnar. Ljósm. Faxaflóahafnir

Sýning um sögu sjóslysa sett upp á Breið

Sýningin Sjóslys við Ísland hefur verið sett upp við Akranesvita. Um er að ræða útisýningu á vegum Faxaflóahafna sem hefur staðið á Miðbakkanum í Reykjavík frá því fyrr á þessu ári. Sýningin varpar ljósi á þróun sjóslysa við Íslandsstrendur síðustu 150 árin og er tileinkuð minningu þeirra þúsunda sjófarenda sem látist hafa og/eða lent í sjóslysum við Íslandsstrendur.

Sýning um sögu sjóslysa sett upp á Breið - Skessuhorn