
Hefja byggingu þriggja einbýlishúsa
Í gær var tekin fyrsta skóflustungan að byggingu þriggja einbýlishúsa við Skógarlund 30, 32 og 34 á Akranesi. Það var Fannar Helgason framkvæmdastjóri Þróttar sem sjálfur steig upp í gröfuna og hóf jarðvegsskipti undir fyrsta einbýlishúsið við Skógarlund 30. Byggingaraðili er Trésmiðjan Akur ehf. Ágætt útsýni er frá byggingarstað; stutt í golfvöllinn og fagurt útsýni til Akrafjalls.
Frændurnir Stefán Gísli Örlygsson og Halldór Stefánsson í Akri voru viðstaddir upphaf framkvæmda. Þeir segjast ætla að byggja þrjú hús af sömu gerð. Afhending þeirra til nýrra kaupenda verður árið 2027, en óvíst er á hvaða byggingarstigi þau verða afhent. „Við ætlum að byggja viðhaldsfrí hús með álklæðningu á útveggjum, gluggum og þakköntum. Stærð þeirra verður 196 fermetrar með 4-5 svefnherbergjum. Við erum bara bjartsýnir með sölu og auðvitað bindum við vonir við að tími lækkandi vaxta fari í hönd þannig að fasteignamarkaður taki að glæðast að nýju,“ sagði Halldór.
