Ríkisstjórnin hefur nú formlega staðfest aðkomu hennar að þremur síðustu björgunarskipunum við strendur landsins, af alls 13. Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir og Kristján Þór Harðarson framkvæmdastjóri Landsbjargar.

Ríkið og Sjóvá standa áfram með Landsbjörgu

Við setningu Björgunar 26 í síðustu viku, alþjóðlegrar ráðstefnu um björgunarmál, var skrifað undir viljayfirlýsingu íslenska ríkisins og Slysavarnafélagsins Landsbjargar um áframhaldandi stuðning við endurnýjun björgunarskipaflotans við strendur Íslands. Ríkið hefur stutt myndarlega við verkefnið fram til þessa, með 50% framlagi í hvert skip. Fyrir lá viljayfirlýsing um aðkomu ríkisins að tíu skipum og nú með þessari undirskrift tryggir ríkið aðkomu sína að síðustu þremur björgunarskipunum. Hringnum verður því lokað innan skamms með 13 öflugum björgunarskipum. Næsta skip fer til Neskaupsstaðar. Öryggi sjófarenda við stendur landsins verður með samningnum betur tryggt fyrir vikið.