
Þakplötur að losna – hættulegt að vera á ferðinni
Þakplötur hafa losnað af íþróttahúsinu í Grundarfirði vegna sunnan hvassviðris sem nú gengur yfir. „Unnið er að því að bregðast við aðstæðum og tryggja öryggi á svæðinu. Fólk er eindregið hvatt til að halda sig fjarri íþróttahúsinu og næsta nágrenni þess á meðan hætta er á foktjóni,“ segir í tilkynningu frá Grundarfjarðarbæ. Björgunarsveitin Klakkur í Grundarfirði hefur verið kölluð út.
Samkvæmt verðurspá verður framan af degi suðaustan og sunnan 18-28 m/s og hvassast á Snæfellsnesi. Þegar líður á daginn eykst vindur og tekur appelsínugul viðvörun gildi á svæðinu við Breiðafjörð. Vindhraði gæti þá farið yfir 40-45 m/s, sem er hættulegt fyrir ökutæki. „Lausamunir fjúka líklega og möguleiki á staðbundnu foktjóni. Búast má við talsverðri rigningu,“ segir í verðuspá. Á
Á umferdin.is kemur fram að allt Snæfellsnes (sérstaklega að norðanverðu) verður á óvissustigi frá hádegi í dag og fram eftir degi vegna sunnan hvassviðris.
Önnur lægði gengur yfir landið á morgun, sunnudag. Þá verður aftur mjög hvasst og byljóttur vindur víða á landinu.