Fréttir

true

Kveðja frá Skógræktarfélagi Borgarfjarðar

Útför Snjólaugar Guðmundsdóttur frá Brúarlandi verður gerð frá Borgarneskirkju í dag klukkan 14. Skógræktarfélag Borgarfjarðar sendir meðfylgjandi kveðju: „Vegna fráfalls Snjólaugar Guðmundsdóttur sendir Skógræktarfélag Borgarfjarðar bónda hennar, ættingjum og vinum innilegar samúðarkveðjur. Listakonan Snjólaug tók þátt í margvíslegu skógræktarstarfi með eiginmanni sínum Guðbrandi Brynjúlfssyni, svo á grænni foldu sem í félagslífi skógræktarfélaga. Þess vegna gerði…Lesa meira

true

Skipta gölluðu parketi út í nýju íþróttahúsi

Í gangi er stór framkvæmd í nýja íþróttahúsinu í Búðardal sem tekið var í notkun í lok febrúar. Ástæðan er galli sem kom í ljósi í virkni gólfsins skömmu eftir að húsið var tekið í notkun. Eftir viðgerðartilraunir og ítarlega skoðun í vor var ákveðið að byggingarverktakinn endurnýjaði gólfið að fullu svo það uppfyllti þær…Lesa meira

true

Frá æskudraumum Charcots til örlaganæturinnar við Mýrar

Charcot var þekktur fyrir manngæsku og sérstaka væntumþykju í garð dýra Illugi Jökulsson, útvarpsmaður, blaðamaður, rithöfundur og grúskari, fór vítt yfir sögu franska heimskautafarans Jean-Baptiste Charcot og rannsóknarskipsins Pourquoi-Pas? í fróðlegri sögustund á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi sl. miðvikudagskvöld. Erindið var hluti af dagskrá í tilefni þess að 90 ár eru liðin frá því…Lesa meira

true

Foreldrasamfélag Akrasels tók til hendinni á skólalóðinni

Foreldraráð leikskólans Akrasels stóð nýverið fyrir vinnudegi á útilóð leikskólans. „Til stóð að bera á leiktæki og sandkassa, kantskera, reita arfa, festa skrúfur og fleira til í almennri tiltekt. Ágæt mæting á laugardagsmorgni hjá foreldrum og sömuleiðis hjá nokkrum starfsmönnum leikskólans sem mættu í sínum frítíma til að taka þátt en slíkt þykir okkur sýna…Lesa meira

true

Ein mannskæðasta lægð sem gengið hefur yfir landið

Trausti Jónsson rifjaði upp veðrið þennan örlagaríka dag þegar Pourquoi-Pas? fórst Minningin um Pourquoi-Pas? og mennina sem fórust með skipinu fyrir 90 árum sveif yfir vötnum miðvikudaginn 16. september. Dagskrá minningardagsins hófst í Safnahúsi Borgarfjarðar, þar sem opnuð var örsýning um skipið og örlög þess. Síðdegis færðist dagskráin að Lyngbrekku á Mýrum, nærri þeim slóðum…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing um uppbyggingu fimm samgöngumannvirkja

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Guðmundur Daði Rúnarsson forstjóri Ganga og brúar ohf. undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja. Í samræmi við lög um innviðafélag, sem samþykkt voru á Alþingi 18. júní í sumar, hefur fjármála- og efnahagsráðherra komið á fót hlutafélagi um fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja. Viljayfirlýsingin nú fjallar um uppbyggingu fimm…Lesa meira

true

Ein grenndarstöð með bætta þjónustu í stað þriggja nú

Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar hefur samþykkt tillögu umhverfisstjóra um að sameina grenndarstöðvar í bænum fyrir sorp úr þremur í eina stöð en sú sem er við Dalbraut verður stækkuð og þjónustan á henni aukin. Í aðdraganda bæjarstjórnarkosninga síðasta vor var íbúum tíðrætt um fyrirkomulag grenndarstöðva. Óánægja var m.a. með staðsetningu grenndarstöðvar við byggðasafnið nærri kirkjugarðinum…Lesa meira

true

Margir lögðu hönd á plóg á gróðursetningardeginum

Dagur íslenskrar náttúru var 16. september síðastliðinn en þá stóð til að halda gróðursetningargleði í Leikskólanum Sólvöllum í Grundarfirði. Vegna veðurs færðist gleðin um einn dag og því voru margir mættir á lóð leikskólans í gærmorgun þar sem tekið var til hendinni. Búið var að safna saman plöntum til að gróðursetja en bæjarbúar voru duglegir…Lesa meira

true

Metnaður, mannlíf og ný heimavist í Menntaskóla Borgarfjarðar

„Markmiðið er að undirbúa nemendur fyrir lífið“ Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi fer vel af stað í haust og nemendur hafa aldrei verið fleiri. Ríflega 220 nemendur eru skráðir við skólann, þar af um 50 nýnemar. Um leið hafa nýir nemendagarðar verið teknir í notkun og er þeir fullsetnir. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, nýr aðstoðarskólameistari, segir mikinn…Lesa meira

true

Ungt fólk af Vesturlandi kemur saman í Borgarnesi

Ungmennaþing Vesturlands verður haldið á Hótel Borgarnesi helgina 25.–27. september. Þingið er ætlað ungu fólki á aldrinum 14 til 25 ára af öllu Vesturlandi og er markmiðið meðal annars að skapa vettvang fyrir samtal ungmenna og ráðamanna um málefni sem brenna á ungu fólki í landshlutanum. Á þinginu verður staða ungmenna á Vesturlandi rædd frá…Lesa meira