Ungt fólk af Vesturlandi kemur saman í Borgarnesi

Ungmennaþing Vesturlands verður haldið á Hótel Borgarnesi helgina 25.–27. september. Þingið er ætlað ungu fólki á aldrinum 14 til 25 ára af öllu Vesturlandi og er markmiðið meðal annars að skapa vettvang fyrir samtal ungmenna og ráðamanna um málefni sem brenna á ungu fólki í landshlutanum.