
Sjálfboðaliðar á vegum Íþróttafélagsins Undra tóku höndum saman og rifu gamla parketið upp. Ljósm. Dalabyggð.
Skipta gölluðu parketi út í nýju íþróttahúsi
Í gangi er stór framkvæmd í nýja íþróttahúsinu í Búðardal sem tekið var í notkun í lok febrúar. Ástæðan er galli sem kom í ljósi í virkni gólfsins skömmu eftir að húsið var tekið í notkun. Eftir viðgerðartilraunir og ítarlega skoðun í vor var ákveðið að byggingarverktakinn endurnýjaði gólfið að fullu svo það uppfyllti þær kröfur sem gerðar eru til þess. Dalabyggð ber ekki kostnað af framkvæmdinni. Gert er ráð fyrir að lagning nýs gólfs og frágangur geti tekið allt að tvær vikur. Á meðan verður notkun íþróttahússins skert en skóla, íþróttafélögum og öðrum reglulegum notendum verður haldið upplýstum um framgang verksins.