Krakkar úr leik- og grunnskólanum gróðursetja plöntur af natni. Ljósmyndir: TFK

Margir lögðu hönd á plóg á gróðursetningardeginum

Dagur íslenskrar náttúru var 16. september síðastliðinn en þá stóð til að halda gróðursetningargleði í Leikskólanum Sólvöllum í Grundarfirði. Vegna veðurs færðist gleðin um einn dag og því voru margir mættir á lóð leikskólans í gærmorgun þar sem tekið var til hendinni. Búið var að safna saman plöntum til að gróðursetja en bæjarbúar voru duglegir að leggja til plöntur og afleggjara. Það voru svo nemendur í leikskólanum, grunnskólanum og framhaldsskólanum sem mættu og gróðursettu allar plönturnar af mikilli natni. Fyrir ári síðan var gróðursett við Grunnskóla Grundarfjarðra og í ár við Leikskólann Sólvelli. Það verður spennandi að sjá hvar plantað verður á næsta ári.