
Göngum og brú ohf er ætlað að halda utan um stærri samgönguframkvæmdir sem allar munu byggja á gjaldtöku.
Viljayfirlýsing um uppbyggingu fimm samgöngumannvirkja
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Guðmundur Daði Rúnarsson forstjóri Ganga og brúar ohf. undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja. Í samræmi við lög um innviðafélag, sem samþykkt voru á Alþingi 18. júní í sumar, hefur fjármála- og efnahagsráðherra komið á fót hlutafélagi um fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja. Viljayfirlýsingin nú fjallar um uppbyggingu fimm stórra samgönguverkefna sem Göngum og brú ohf. er ætlað að fjármagna og koma í framkvæmd. Þessar framkvæmdir eru: Hornafjarðarfljót, Ölfusárbrú, Fljótagöng, Sundbraut og ný Hvalfjarðargöng. Það sem greinir þessar framkvæmdir frá öðrum vegabótum er að þær eiga að standa undir sér með gjaldtöku.