
Grenndarstöðin við Byggðasafnið í Görðum mun brátt heyra sögunni til og sama á við um grenndarstöðina við Bíóhöllina. Ljósm. mm
Ein grenndarstöð með bætta þjónustu í stað þriggja nú
Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar hefur samþykkt tillögu umhverfisstjóra um að sameina grenndarstöðvar í bænum fyrir sorp úr þremur í eina stöð en sú sem er við Dalbraut verður stækkuð og þjónustan á henni aukin. Í aðdraganda bæjarstjórnarkosninga síðasta vor var íbúum tíðrætt um fyrirkomulag grenndarstöðva. Óánægja var m.a. með staðsetningu grenndarstöðvar við byggðasafnið nærri kirkjugarðinum í Görðum. Þriðja grenndarstöðin hefur verið við Bíóhöllina við Vesturgötu.