
Tekið til, málað og snyrt á lóð Akrasels. Ljósmyndir: Stefanía Sól
Foreldrasamfélag Akrasels tók til hendinni á skólalóðinni
Foreldraráð leikskólans Akrasels stóð nýverið fyrir vinnudegi á útilóð leikskólans. „Til stóð að bera á leiktæki og sandkassa, kantskera, reita arfa, festa skrúfur og fleira til í almennri tiltekt. Ágæt mæting á laugardagsmorgni hjá foreldrum og sömuleiðis hjá nokkrum starfsmönnum leikskólans sem mættu í sínum frítíma til að taka þátt en slíkt þykir okkur sýna einstakt hugarfar og vilja til að gera hlutina sem allra besta fyrir hópinn og liðsheildina sem Akrasel býr yfir,“ segir Ingvar Örn Ákason sem sæti á í stjórn foreldraráðs.