Hjónin Snjólaug Guðmundsdóttir og Guðbrandur Brynjúlfsson á góðri stundu fyrir um ári síðan þegar Skógræktarfélag Íslands hélt landsþing sitt á Varmalandi. Ljósm. mm

Kveðja frá Skógræktarfélagi Borgarfjarðar

Útför Snjólaugar Guðmundsdóttur frá Brúarlandi verður gerð frá Borgarneskirkju í dag klukkan 14. Skógræktarfélag Borgarfjarðar sendir meðfylgjandi kveðju:

„Vegna fráfalls Snjólaugar Guðmundsdóttur sendir Skógræktarfélag Borgarfjarðar bónda hennar, ættingjum og vinum innilegar samúðarkveðjur. Listakonan Snjólaug tók þátt í margvíslegu skógræktarstarfi með eiginmanni sínum Guðbrandi Brynjúlfssyni, svo á grænni foldu sem í félagslífi skógræktarfélaga. Þess vegna gerði Skógræktarfélag Borgarfjarðar þau virtu hjón á Brúarlandi, að heiðursfélögum sínum, á áttræðisafmæli félagsins 2018. Að leiðarlokum sendir skógræktarfólk í Borgarfirði Guðbrandi og öllum aðstandendum Snjólaugar Guðmundsdóttur hjartans hlýjar kveðjur með þakkæti fyrir samferðina við að klæða landið.“