Fréttir

true

Unnur er áttunda björgunarskip Landsbjargar og fer til Patreksfjarðar

Nýjasta björgunarskip Landsbjargar er komið til landsins og verður innan tíðar siglt til heimahafnar þess á Patreksfirði. Unnur er áttunda skipið í endurnýjun björgunarskipaflota Slysavarnafélagsins Landsbjargar, en alls verða 13 björgunarskip endurnýjuð í verkefninu. Á Patreksfirði tekur Unnur við af Verði II, sem var smíðaður árið 1987 og hefur þjónað þar frá árinu 2005. Nafn…Lesa meira

true

Íslenskar sjúkratryggingar ná ekki lengur til ferðamanna utan EES

Mikil breyting verður á tryggingarvernd Íslendinga á ferðalögum utan Evrópska efnahagssvæðisins um næstu áramót. Frá 1. janúar 2027 munu íslenskar sjúkratryggingar almennt ekki lengur taka þátt í kostnaði sem sjúkratryggðir verða fyrir vegna veikinda eða slysa í löndum utan EES. Jafnframt snertir þessi breyting þá fjölmörgu Íslendinga sem dvelja mánuðum saman ár hvert erlendis, t.d.…Lesa meira

true

Gönguferðir, tækni og endurnærandi ferðaþjónusta til umræðu

Opið rannsóknarerindi um gönguferðir, stafræna tækni og endurnærandi ferðaþjónustu á Íslandi verður haldið á morgun, föstudaginn 11. september kl. 10–12 í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Þar verða kynntar rannsóknir á því hvernig tæknin hefur áhrif á upplifun fólks af gönguferðum og hvernig hugmyndir um endurnærandi ferðaþjónustu hafa þróast hér á landi. Julian Dietze mun fjalla um…Lesa meira

true

Brynja stígur fram sem lagahöfundur á Hádegistónum

Brynja Valdimarsdóttir tónskáld og söngkona kemur fram ásamt hljómsveit á Hádegistónum á Breið nýsköpunarsetri á Akranesi í dag, fimmtudaginn 10. september. Tónleikarnir hefjast kl. 12:05 og standa í um hálfa klukkustund. Á efnisskránni verður blanda af frumsaminni tónlist Brynju og þekktum lögum í nýjum útsetningum. Tónlistin verður flutt í akústískum stíl með blúsívafi. Tónleikarnir marka…Lesa meira

true

Quarashi býður Skagamönnum í Bíóhöllina

Hljómsveitin Quarashi ætlar að þakka fyrir góðar móttökur á Akranesi með ókeypis tónleikum í Bíóhöllinni á morgun, föstudaginn 11. september. Tónleikarnir hefjast kl. 19 og verður ekkert aldurstakmark. Hljómsveitin hefur dvalið við æfingar í Bíóhöllinni undanfarnar vikur og segir velvild heimamanna hafa verið mikla. Af því tilefni ætlar Quarashi að stíga á svið og flytja…Lesa meira

true

Tímabundin vernd lengd í allt að sex ár

Ríkisstjórnin hefur afgreitt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um útlendinga vegna tímabundinnar verndar fólks á flótta. Með frumvarpinu er meðal annars lagt til að hámarkstími slíkrar verndar verði lengdur úr fimm árum í sex líkt og fram kom í tilkynning frá Dómsmálaráðuneytinu í vikunni. Breytingin tengist ákvörðun Evrópusambandsins um að framlengja tímabundna vernd fólks…Lesa meira

true

Níutíu ár í næstu viku síðan Pourqoui pas? fórst við Straumfjörð á Mýrum

Miðvikudaginn 16. september næstkomandi verða 90 ár liðin frá því franska rannsóknaskipið Pourquoi pas? fórst við Straumfjörð á Mýrum. Franski landkönnuðurinn, leiðangursstjórinn og læknirinn Jean-Baptiste Charcot fórst með skipinu. Hann var einn þeirra merkismanna sem fyrstir könnuðu og kortlögðu haf- og landsvæðin umhverfis heimskautin í byrjun síðustu aldar en þeirra á meðal voru Amundsen, Scott,…Lesa meira

true

Bjarkarhlíð með mánaðarlega viðveru á Akranesi

Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, býður upp á þjónustu á Akranesi og er með reglulega viðveru í bænum einu sinni í mánuði. Þjónustan er ætluð þolendum ofbeldis af öllum kynjum, 18 ára og eldri, og er öll ráðgjöf veitt án endurgjalds. Hjá Bjarkarhlíð er boðið upp á áfallamiðaða ráðgjöf, stuðning og upplýsingar fyrir fólk sem…Lesa meira

true

Akranes vill halda eigin áformum um skammtímadvöl til streitu

Tillaga um sameiginlegan rekstur skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi var tekin til afgreiðslu í bæjarstjórn Akraness á fundi hennar í gær. Tillagan var unnin af framkvæmdastjórum sveitarfélaga á Vesturlandi í samstarfi við sviðsstjóra velferðarsviða á svæðinu. Velferðar- og mannréttindaráð Akraness hafði áður tekið tillöguna fyrir og fagnaði þeirri uppbyggingu sem þar er lögð til.…Lesa meira

true

Hefja viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur ákveðið að hefja formlegt samtal og viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands vegna mögulegs samstarfs um rekstur barnaverndarþjónustu. Barnaverndarþjónusta Vesturlands er samtarf sex sveitarfélaga á Vesturlandi. Fyrir nokkru voru gerðar breytingar á barnaverndarlögum nr. 80/2002 sem m.a. fólst í því að barnaverndarnefndir voru lagðar niður en í þeirra stað tóku til starfa umdæmisráð. Þá…Lesa meira