Unnur er áttunda björgunarskip Landsbjargar og fer til Patreksfjarðar

Nýjasta björgunarskip Landsbjargar er komið til landsins og verður innan tíðar siglt til heimahafnar þess á Patreksfirði. Unnur er áttunda skipið í endurnýjun björgunarskipaflota Slysavarnafélagsins Landsbjargar, en alls verða 13 björgunarskip endurnýjuð í verkefninu. Á Patreksfirði tekur Unnur við af Verði II, sem var smíðaður árið 1987 og hefur þjónað þar frá árinu 2005. Nafn nýja skipsins vísar til Slysavarnadeildarinnar Unnar, sem hefur um árabil staðið þétt við bakið á björgunarbátasjóði og björgunarsveitinni á Patreksfirði.