Gönguferðir, tækni og endurnærandi ferðaþjónusta til umræðu

Opið rannsóknarerindi um gönguferðir, stafræna tækni og endurnærandi ferðaþjónustu á Íslandi verður haldið á morgun, föstudaginn 11. september kl. 10–12 í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Þar verða kynntar rannsóknir á því hvernig tæknin hefur áhrif á upplifun fólks af gönguferðum og hvernig hugmyndir um endurnærandi ferðaþjónustu hafa þróast hér á landi.