Akranes vill halda eigin áformum um skammtímadvöl til streitu

Tillaga um sameiginlegan rekstur skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi var tekin til afgreiðslu í bæjarstjórn Akraness á fundi hennar í gær. Tillagan var unnin af framkvæmdastjórum sveitarfélaga á Vesturlandi í samstarfi við sviðsstjóra velferðarsviða á svæðinu. Velferðar- og mannréttindaráð Akraness hafði áður tekið tillöguna fyrir og fagnaði þeirri uppbyggingu sem þar er lögð til. Ráðið samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti og vísaði henni áfram til bæjarstjórnar.

Akranes vill halda eigin áformum um skammtímadvöl til streitu - Skessuhorn