Hefja viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur ákveðið að hefja formlegt samtal og viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands vegna mögulegs samstarfs um rekstur barnaverndarþjónustu. Barnaverndarþjónusta Vesturlands er samtarf sex sveitarfélaga á Vesturlandi. Fyrir nokkru voru gerðar breytingar á barnaverndarlögum nr. 80/2002 sem m.a. fólst í því að barnaverndarnefndir voru lagðar niður en í þeirra stað tóku til starfa umdæmisráð. Þá voru sett inn lágmarksskilyrði varðandi íbúafjölda en hver barnaverndarþjónusta verður að telja að lágmarki 6.000 íbúa. Er með þessu verið að leggja ríka áherslu á að minni sveitarfélög standi saman að sameiginlegri barnaverndarþjónustu.