
Quarashi býður Skagamönnum í Bíóhöllina
Hljómsveitin Quarashi ætlar að þakka fyrir góðar móttökur á Akranesi með ókeypis tónleikum í Bíóhöllinni á morgun, föstudaginn 11. september. Tónleikarnir hefjast kl. 19 og verður ekkert aldurstakmark. Hljómsveitin hefur dvalið við æfingar í Bíóhöllinni undanfarnar vikur og segir velvild heimamanna hafa verið mikla. Af því tilefni ætlar Quarashi að stíga á svið og flytja nokkur vel valin lög fyrir Skagamenn og aðra gesti.
„Við erum búnir að vera í æfingabúðum í nokkrar vikur í þessari mögnuðu Bíóhöll og okkur langar að endurgjalda þá miklu velvild sem okkur hefur verið sýnd hér á Akranesi,“ segir hljómsveitin. Húsið verður opnað kl. 18:40 og er aðgangur ókeypis. Quarashi lofar jafnframt gestum „alvöru showi“.