
Hér leggur Pourquoi Pas? úr höfn í Reykjavík 15. september 1936. Líklega er þetta síðasta myndin sem tekin var af skipinu. Ljósmyndina tók Helgi Hafliðason.
Níutíu ár í næstu viku síðan Pourqoui pas? fórst við Straumfjörð á Mýrum
Miðvikudaginn 16. september næstkomandi verða 90 ár liðin frá því franska rannsóknaskipið Pourquoi pas? fórst við Straumfjörð á Mýrum. Franski landkönnuðurinn, leiðangursstjórinn og læknirinn Jean-Baptiste Charcot fórst með skipinu. Hann var einn þeirra merkismanna sem fyrstir könnuðu og kortlögðu haf- og landsvæðin umhverfis heimskautin í byrjun síðustu aldar en þeirra á meðal voru Amundsen, Scott, Nordenskjöld og Peary. Þekktasta skip Charcots var Pourquoi-Pas?, sérútbúið rannsóknaskip með þremur rannsóknastofum og bókasafni, allra fullkomnasta rannsóknaskip heims á sínum tíma. Í ferðum þess voru gerðar margvíslegar vísindarannsóknir sem þykja stórmerkar enn þann dag í dag.