Íslenskar sjúkratryggingar ná ekki lengur til ferðamanna utan EES

Mikil breyting verður á tryggingarvernd Íslendinga á ferðalögum utan Evrópska efnahagssvæðisins um næstu áramót. Frá 1. janúar 2027 munu íslenskar sjúkratryggingar almennt ekki lengur taka þátt í kostnaði sem sjúkratryggðir verða fyrir vegna veikinda eða slysa í löndum utan EES. Jafnframt snertir þessi breyting þá fjölmörgu Íslendinga sem dvelja mánuðum saman ár hvert erlendis, t.d. á Spáni, en þar eru fjölmörg sjúkrahús einkarekin. Sjúkratryggingar Íslands munu framvegis aðeins greiða sjúkrakostnað á ríkisreknum spítölum innan EES svæðisins.