
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra Íslands. Ljósm. Stjórnarráðið.
Tímabundin vernd lengd í allt að sex ár
Ríkisstjórnin hefur afgreitt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um útlendinga vegna tímabundinnar verndar fólks á flótta. Með frumvarpinu er meðal annars lagt til að hámarkstími slíkrar verndar verði lengdur úr fimm árum í sex líkt og fram kom í tilkynning frá Dómsmálaráðuneytinu í vikunni.