Bjarkarhlíð með mánaðarlega viðveru á Akranesi

Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, býður upp á þjónustu á Akranesi og er með reglulega viðveru í bænum einu sinni í mánuði. Þjónustan er ætluð þolendum ofbeldis af öllum kynjum, 18 ára og eldri, og er öll ráðgjöf veitt án endurgjalds.