
Brynja stígur fram sem lagahöfundur á Hádegistónum
Brynja Valdimarsdóttir tónskáld og söngkona kemur fram ásamt hljómsveit á Hádegistónum á Breið nýsköpunarsetri á Akranesi í dag, fimmtudaginn 10. september. Tónleikarnir hefjast kl. 12:05 og standa í um hálfa klukkustund. Á efnisskránni verður blanda af frumsaminni tónlist Brynju og þekktum lögum í nýjum útsetningum. Tónlistin verður flutt í akústískum stíl með blúsívafi. Tónleikarnir marka jafnframt tímamót fyrir Brynju því þetta verður í fyrsta sinn sem hún kemur fram opinberlega sem lagahöfundur.
Með Brynju leika Eðvarð Lárusson á gítar, Heiðrún Hámundar á bassa og Jakob Grétar Sigurðsson á trommur. Listrænn stjórnandi Hádegistóna er Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, söngkona og verkefna- og viðburðastjóri. Hádegistónar eru samstarfsverkefni Menningarfélagsins Bohème og Breiðar nýsköpunarseturs og er markmið tónleikaraðarinnar að skapa lifandi tónlistarstund í skapandi umhverfi Breiðar. Verkefnið nýtur styrks frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og Akraneskaupstað.