Fréttir

true

Krónan og LbhÍ hefja samstarf

Krónan og Landbúnaðarháskóli Íslands hafa undirritað þriggja ára samstarfssamning. Markmiðið er að færa nemendur skólans nær atvinnulífinu, efla þekkingu þeirra á matvælamarkaði og styrkja tengsl Landbúnaðarháskólans, bændasamfélagsins og Krónunnar. Samstarfið nær meðal annars til náms í búfræði og búvísindum. „Starfsfólk Krónunnar mun taka þátt í kennslu með fyrirlestrum, fyrirtækjaheimsóknum og ráðgjöf. Nemendur fá þannig innsýn…Lesa meira

true

Vantar vaska smala í leitir síðar í vikunni

Eitthvað er að þyngjast undir fæti hjá bændum að fullmanna leitir sem eru á næsta leiti. Gangnamenn halda víða á fjöll í þessari viku og stærsta réttahelgin er fram undan. Nú bregður svo við að í fyrstu leit á Holtavörðuheiði vantar enn þrjá leitarmenn. Davíð Sigurðsson, bóndi í Miðgarði og fjallkóngur Tungnamanna, segir að óvenjulega…Lesa meira

true

Sextíu ára vígsluafmæli Grundarfjarðarkirkju

Sunnudaginn 6. september var hátíðarmessa í Grundarfjarðarkirkju þar sem 60 ár eru frá því að kirkjan var vígð. Séra Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum flutti predikun en sr. Karen Hjartardóttir núverandi sóknarprestur í Setbergsprestakalli stýrði hátíðlegri stund. Fjölmennt var í messunni. Margir fyrrverandi prestar í sókninni létu sjá sig en einnig mætti Sigurbjörn Magnússon en…Lesa meira

true

Kaupmáttur hefur aukist en húsnæðisbyrði þyngst hjá ungu fólki

Samkvæmt tilkynningu frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu hefur kaupmáttur aukist hjá öllum tekjuhópum á gildistíma núverandi kjarasamninga en þróunin hefur verið misjöfn eftir aldri og stöðu fólks á húsnæðismarkaði. Þetta er meðal niðurstaðna greiningar sem kynnt var á fundi Þjóðhagsráðs í síðustu viku. Greining á tekjuþróun síðasta áratugar sýnir að kaupmáttur hefur vaxið í öllum tekjutíundum…Lesa meira

true

Síðasta stóra skip sumarsins í Grundarfirði

Skemmtiferðaskipið Sky Princess kom til Grundarfjarðar föstudaginn 4. september í sína síðustu heimsókn þetta sumarið. Skipið er 330 metrar að lengd og rúmir 38 metrar á breidd og var á ankeri í höfninni. Skipið tekur 3.600 farþega og voru fjölmargir þeirra á ferð innanbæjar þennan fallega föstudag og iðaði bærinn því af lífi. Nú þegar…Lesa meira

true

Viktor með þrennu þegar Skagamenn tryggðu sæti í efri hlutanum

Skagamenn tryggðu sér í gær sæti í efri hluta Bestu deildar karla með glæsilegum 3:1 sigri á KR á Elkem vellinum á Akranesi í lokaumferðinni fyrir tvískiptingu deildarinnar. Viktor Jónsson var maður leiksins og skoraði öll þrjú mörk ÍA. Mikið var undir hjá báðum liðum. Skagamenn þurftu á góðum úrslitum að halda í baráttunni um…Lesa meira

true

Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna ungmenna

Hvalfjarðarsveit hefur opnað fyrir umsóknir um sérstakan húsnæðisstuðning vegna 15–17 ára ungmenna sem þurfa að dvelja fjarri lögheimili sínu vegna náms. Stuðningurinn er ætlaður foreldrum og forsjáraðilum ungmenna á þessum aldri sem leigja herbergi, dvelja á heimavist eða námsgörðum fjarri heimili sínu. Hann er óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila. Samkvæmt reglum Hvalfjarðarsveitar getur…Lesa meira

true

Auglýsa styrki til þróunar búgreina

Atvinnuvegaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna í fjórum búgreinum; garðyrkju, sauðfjárrækt, nautgriparækt og hrossarækt. Umsóknarfrestur er til 15. október. Styrkirnir eru ætlaðir verkefnum sem stuðla að þróun og eflingu viðkomandi búgreina. Í nautgriparækt er áhersla á rannsóknir og þróunarverkefni en í sauðfjárrækt geta verkefni meðal annars snúið að kennslu, rannsóknum, leiðbeiningum og…Lesa meira

true

Algjört metár í vændum í fiskeldinu

Útflutningsverðmæti eldisafurða í fiski nam 4,8 milljörðum króna í júlí. Samtals eru verðmætin komin í 40,8 milljarða króna á fyrstu sjö mánuðum ársins og hafa aldrei verið meiri á þessum tíma árs. Í Radarnum, vefriti SFS, kemur fram að teknu tilliti til gengisbreytinga nemur aukningin tæpum 36% frá sama tímabili í fyrra, þegar verðmætin voru…Lesa meira

true

Síðasti deildarleikurinn fyrir skiptingu

Það verður allt lagt undir í leik gömlu erkifjendanna ÍA og KR þegar liðin mætast á Elkem vellinum á Akranesi í mikilvægum leik í Bestu deildinni klukkan 14 í dag. Þetta verður jafnframt síðasti deildarleikurinn í sumar áður en deildinni verður skipt upp. Með sigri í dag geta Skagamenn tryggt sér sæti meðal sex efstu…Lesa meira