Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra á kynningu á fárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 í morgun. Ljósm. Stjórnarráðið

Kaupmáttur hefur aukist en húsnæðisbyrði þyngst hjá ungu fólki

Samkvæmt tilkynningu frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu hefur kaupmáttur aukist hjá öllum tekjuhópum á gildistíma núverandi kjarasamninga en þróunin hefur verið misjöfn eftir aldri og stöðu fólks á húsnæðismarkaði. Þetta er meðal niðurstaðna greiningar sem kynnt var á fundi Þjóðhagsráðs í síðustu viku.