Auglýsa styrki til þróunar búgreina

Atvinnuvegaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna í fjórum búgreinum; garðyrkju, sauðfjárrækt, nautgriparækt og hrossarækt. Umsóknarfrestur er til 15. október. Styrkirnir eru ætlaðir verkefnum sem stuðla að þróun og eflingu viðkomandi búgreina. Í nautgriparækt er áhersla á rannsóknir og þróunarverkefni en í sauðfjárrækt geta verkefni meðal annars snúið að kennslu, rannsóknum, leiðbeiningum og þróun. Í hrossarækt er horft til verkefna sem stuðla að því að viðhalda verðmætum eiginleikum íslenska hrossastofnsins og velferð hrossa. Styrkhæf verkefni í garðyrkju ná yfir breiðara svið, meðal annars ráðgjöf, kynningu, rannsóknir, tilraunir og vöruþróun. Einnig koma til greina verkefni sem miða að minni losun gróðurhúsalofttegunda og endurmenntun innan greinarinnar. Auglýst er eftir umsóknum um þróunarverkefni búgreina tvisvar á ári.