
Vantar vaska smala í leitir síðar í vikunni
Eitthvað er að þyngjast undir fæti hjá bændum að fullmanna leitir sem eru á næsta leiti. Gangnamenn halda víða á fjöll í þessari viku og stærsta réttahelgin er fram undan. Nú bregður svo við að í fyrstu leit á Holtavörðuheiði vantar enn þrjá leitarmenn. Davíð Sigurðsson, bóndi í Miðgarði og fjallkóngur Tungnamanna, segir að óvenjulega þungt sé undir fæti að manna leitina að fullu. Sama gildi um Þverhlíðingaleit. Nú hafi sauðfjárbændum fækkað og skýri það muninn frá fyrri tíð þegar færri komust að en vildu í leitir. Davíð biðlar því til áhugasamra að hafa samband við sig. Æskilegt er að viðkomandi hafi hross, en þó er ekki skilyrði að allir smalar leiti á hrossum. Holtavörðuheiðarleit hefst í býtið á föstudagsmorgun, en hægt er að koma sér fyrir í skála kvöldið áður. Leitarmenn halda sem fyrr til í Fornahvammi. Safnið er svo rekið til Þverárréttar á sunnudag.
Einnig vantar leitarmann á Arnarvatnsheiði en fyrstu gangnamenn þar halda á heiðina á morgun. Heiðarleit er þó styttri, eða tveggja nátta leit og komið niður í Fljótstungurétt síðdegis á laugardag.